|
Nýir lyklar á leiðinni til félagsmanna. |
|
|
|
|
Skrifað af: stjorn
|
|
Mánudagur, 14. júní 2010 23:32 |
|
Allir félagsmenn sem greitt hafa árgjald fá á næstu dögum nýjan lykil sem gengur að skotsvæðinu. Nýju lyklarnir eru auðkenndir með tölunni "0". Lyklar félagsmanna ganga að félagsheimilinu og riffilbrautinni. Í ljósi þeirra miklu framkvæmda og endurbóta sem farið hafa fram á síðustu vikum er brýnt fyrir mönnum að ganga vel um svæðið og tryggja að húsið sé læst og rifflibrautin lokuð þegar svæðið er yfirgefið. Þá er brýnt að læsa keðjunni.
Skipt verður um lása helgina 19.-20.júni næstkomandi.
|